
Stenst vefsíðan þín tímans tönn?
Er vefsíðan þín nægilega góð til að standast nútíma kröfur þegar það kemur að t.d. að upplifun notanda og hraða vefsíðunnar ?
Til þess að velta þeirri hugmynd áfram og meta það hvort þín vefsíða sé nægilega góð fyrir þína viðskiptavini og notendur að þá eru hérna þó nokkrir punktar sem einkenna góða vefsíðu
1. Vel hönnuð og vel uppsett vefsíða
Vefsíðan þín endurspeglar ímynd fyrirtækisins til notandans sem er kannski að uppgötva þig og kynnast þér í fyrsta skipti í gegnum vefsíðuna þína. Því er mjög mikilvægt að vefsíðan gefi notandanum rétta mynd af því hver þú ert og hvað þið standið fyrir.
Hér spilar inn í vefsíðuhönnunin sem slík og einnig einfaldleikinn í uppsetningu og það getur t.d. verið vel hönnuð valmynd (menu) ásamt að fronta því helsta sem gæti skipt notandann máli eins og upplýsingar um þjónustu, opnunartíma, vörur, hvernig hægt er að hafa samband ofl í þeim dúr.
Vefsíðan þarf svo einnig að virka í öllum gerðum af skjám og snjalltækjum.
Allt þetta stuðlar að því að geta myndað viðskiptasamband við aðilann sem er að leita sér upplýsinga.
2. Hraði vefsíðu
Við sem notendur erum í dag einfaldlega orðin mjög óþolinmóð hvort sem við erum að vafra um á heimaneti, þráðlausu neti eða 4G/5G og raunin er að vefsíðan sem þú skoðar þarf að hlaðast hratt og örugglega inn því ef hún gerir það ekki að þá eru miklar líkur á því að notandinn loki síðunni og leiti annað.
Ef þú vilt mæta hraða vefsíðunnar / netverslunnar þinnar að þá eru hérna nokkur tól sem þú getur notað
- https://gtmetrix.com/ mælir hraða síðunnar og gefur þér innsýn hvað hægt sé að bæta þar
- https://pagespeed.web.dev/ er tól frá google þar sem þú getur mælt bæði hraða desktop útgáfu vefsíðunnar þinnar og svo hraðann á mobile útgáfunni
3. Farsímaútgáfan af vefsíðunni
Þar sem notkun farsíma og spjaldtölva hefur aukist til muna síðustu ár að þá verður farsíma útgáfan af vefsíðunni þinni að vera góð og virka á öllum snjalltækjum.
Að vera með góða, snögga og vel útfærða útgáfu af vefsíðunni þinni fyrir farsíma mun bæta notendaupplifun og einnig bæta stöðu þína á leitarvélum.
4. Skýr markmið
Þegar ný vefsíða er sett upp að þá er mikilvægt að skilgreina hlutverk vefsíðunnar, þ.e.a.s. er vefsíðan að leysa vandamál, bæta upplýsingaflæði, auka sölu, fækka símtölum og/eða fyrirspurnum og þess háttar pælingar.
Að hugsa og fara yfir alla hliðar af starfsemi þinni og svo taka það á næsta skref og sjá hvernig þú getur notað vefsíðuna þína til að betrumbæta upplýsingar og jafnvel minnkað álag á starfsmönnum.
Gott efni ásamt góðum og gagnlegum upplýsingum um starfsemi, þjónustu, starfsfólk hjálpar mörgum notendum að finna það sem þeir leita að.
Þetta er því miður liður sem mjög margir hugsa ekki út í þegar þeir leggja af stað í þeirri vegferð að uppfæra eða setja upp nýja vefsíðu.
5. Öryggi & uppfærslur
Reglulegar uppfærslur á lausnum / viðbótum sem keyra vefsíðuna þína ásamt lausnum sem styrkja öryggið á vefsíðunni þinni er mikilvægur þáttur í því að vefsíðan þín virki sem skyldi og partur af því að halda óprúttnum aðilum frá því að skemma eða taka yfir vefsíðuna þínasem er í flestum tilfellum andlit fyrirtækis út á við.
Hérna kemur að einum þætti sem er mjög mikilvægur en það er að velja réttan þjónustu aðilas em ekki bara hýsir vefsíðuna þína heldur uppfærir og passar upp á hana en það gerum við einmitt hjá Vefstofunni.

6. Leitarvélabestun
Allt ofantalið hefur svo einnig áhrif á það sem skiptir svo einna mest máli en það er hvort að þú finnist yfir höfuð á leitarvélunum.
Þegar kemur að leitarvélabestun að þá eru mjög fáir á Íslandi sem geta skilgreint sig sem sérfræðing í þeim efnum enda eru kröfunnar frá leitarvélum eins og Google & Bing orðnar mjög miklar en í dag eru nokkur hundruð þættir sem ákvarða hvar á leitarvélunum þínvefsíða / netverslun lendir.
Ef þú vilt skoða hvar þín vefsíða skorar gagnvart leitarvélum óháð leitarorði að þá geturðu gert það í þessu tóli hérna https://www.siteguru.co/ (ath getur notað það frítt í 14 daga án þess að nota kreditkort)
Við hjá Vefstofan.is erum svo heppnir að vera með sérfræðing í leitarvélabestun í teyminu okkar þannig ekki hika við að heyra í okkur ef þig vantar aðstoð með leitarvélarnar.
Niðurstaða
Til að setja upp góða vefsíðu sem skilar árangri að þá er mikilvægt að hugsa að öllu ofantöldu ásamt fleiri hlutum þar sem þessi listi er ekki tæmandi en gefur góða innsýn inn í það hvað þarf að gera til að sigra samkeppnina